Almenn s - PowerPoint PPT Presentation

1 / 23
About This Presentation
Title:

Almenn s

Description:

Tilraun Solomons Asch. Rannsaka i fylgispekt (conformity). Tilraun Asch var hvati fj lda annarra ranns kna. Markmi i me tilraun Asch (1955) ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:71
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 24
Provided by: Fa89
Category:
Tags: almenn | solomons

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Almenn s


1
Almenn sálfræðihugur, heili og hátterni
  • Höf Aldís Guðmundsdóttir
  • Jörgen Pind
  • Kennari Þórður Sigurðsson

2
10. KafliRannsóknir í sálfræði
Sálfræði reynir að byggja niðurstöður sínar á
traustum rannsóknum. Í þessum kafla og næsta er
fjallað um hvernig skuli staðið að rannsóknum
þannig að mark sé á þeim takandi. Fjallað um
aðferðafræði rannsókna.
Tilraunin er hin upprunalega rannsóknaraðferð
sálfræðinnar og gegnir enn lykilhlutverki í
greininni.
Auk tilrauna nota sálfræðingar aðferðir á borð
við fylgnirannsóknir og náttúrulegar athuganir
3
Rannsóknir hefjast oft á athugun
Í sálfræði leggja menn áherslu á að fylgjast með
hegðun manna og dýra í náttúrulegu umhverfi.
Sérstaklega í atferlisfræði. Darwin beitti
þessari nálgun. Hægt að skoða atferli í í heild
Dæmi Rannsókn Dorothys Cheney og Roberts M.
Seyfarth (1990). Hvernig apar sjá heiminn.
Fjallar um hegðun Vervet apa í Afríku.
Ungir apar læra rétta hegðun með því að fylgjast
með hegðun fullorðinna apa
4
Tilraunin er öruggasta rannsóknaraðferðin
Áður fyrr tíðkaðist að leyfa fólki að fylgjast
með framgangi tilrauna. Slíkt var gert til að ýta
undir sannleiksgildi tilrauna. Í dag er lögð sú
kvöð á vísindamenn að lýsa framkvæmd tilrauna svo
nákvæmlega að aðrir geti endurtekið hana.
Tilraun felur í sér kerfisbundna aðferð til að
grípa inn í eða að koma af stað atburðarás í þeim
tilgangi að álykta megi af öryggi um orsök hverju
sinni, hvað veldur hverju. Megineinkenni tilrauna
felur í sér inngrip rannsakanda. Hann hefur
stjórn á atburðarás
5
RannsóknaraðferðirTilraunaaðferðin
  • Breyta, rannsóknarþáttur sem getur tekið
    mismunandi gildi.
  • Reynt að hafa stjórn á öllum breytum í
    rannsóknum.
  • Frumbreyta, sú breyta sem er talin vera
    áhrifavaldur (orsök hegðunar).
  • Fylgibreyta, sú breyta sem er undir áhrifum
    frumbreytu.

6
Dæmi um breytur
  • Dæmi um breytur

Gildi
  • Hæð 0-200 cm
  • Þyngd 40-120 kg.
  • Aldur 1-80 ára
  • Kyn kk eða kvk

7
Tilraunasnið hönnun tilrauna
  • Tilraunasnið, notað til að lýsa aðferðum sem
    notaðar eru við að skipuleggja tilraun.
  • Einfaldasta tilraunasnið er að skoða áhrif
    frumbreytu á fylgibreytu.
  • Tilraunahópur
  • Samanburðarhópur.
  • Fjölbreytusnið

8
Tilraunaaðferðin
Innra réttmæti Vísar til þess hversu örugglega
rannsakandinn getur ályktað um orsakasamband
milli frum- og fylgibreytu. Vegna þess að
rannsakandinn stjórnar sjálfur frumbreytunum,
ræður inngripunum hverju sinni, er innra réttmæti
yfirleitt hátt.
Miklu máli skiptir í tilraunum að rannsakandi
hafi stjórn á öðrum breytum sem kunna að hafa
áhrif á mælingar. Breytum sem er haldið föstum í
tilraunum kallast stjórnbreytur (t.d. prófa alla
á sama tíma).
Ytra réttmæti vísar til þess að stundum hafa
tilraunir lítið alhæfingargildi yfir í
raunverulegar aðstæður eða hegðun. Þetta á við um
rannsóknir sem framkvæmdar eru á tilraunastofum
þar sem allir óvissuþættir eru undir fullkominni
stjórn (t.d. minnisrannsókn Hermanns Ebbinghaus)
9
Dæmi um tilraun
  • Rannsóknarspurning
  • Hefur mismunandi svefntími áhrif á námshæfni?
  • Breytur
  • Svefntími og námshæfni

10
Dæmi um tilraun
  • Framkvæmd
  • 30 manna hópi er skipt af handahófi í þrjá 10
    manna hópa. Einn hópurinn er látinn fara að sofa
    kl. 23, annar kl. 01 og sá þriðji kl. 04. Allir
    hóparnir eru svo vaktir kl 8 morguninn eftir.
  • Næst er haldið námskeið í notkun forritsins
    Publisher og að því loknu taka allir próf.
  • Að lokum er mælt hvort mismunur kemur fram milli
    hópanna þriggja

11
Dæmi um tilraun
  • Gildi breytanna
  • Svefntími
  • 9, 7 og 4 klst.
  • Námshæfni
  • Einkunn á bilinu 1-10

12
Hugsanlegar niðurstöður
13
Tilraunaaðferð
  • Tvær gerðir breyta
  • Frumbreyta
  • Sú breyta sem er undanfari eða orsök og
    rannsakandi hefur stjórn á myndar inngrip
  • Fylgibreyta
  • Breytan sem verður fyrir áhrifum af frumbreytunni
    og rannsakandi hefur ekki stjórn á (afleiðing
    frumbreytunnar)

14
Tilraunaaðferð
  • Í tilraun á svefntíma og námshæfni var
  • Svefntími Frumbreyta
  • Námshæfni Fylgibreyta
  • gt Mismunandi svefntími var orsök mismunandi
    námshæfni.

15
TilraunSpönnun skammtímaminnis
Í áfanganum eigið þið að skila skýrslu þar sem
þið prófið spönnun skammtímaminnis. Getið þið
séð út frá ofangreindu dæmi hver er frumbreyta og
hver er fylgibreyta í ykkar rannsókn?
16
Tilraunir verða oft hvati frekari rannsókna
Markmiðið með tilraun Asch (1955) var að kanna
hvaða áhrif hópþrýsingur hafði á einstæðing sem
skráði sig í góðri trú sem þátttakandi í
rannsókn. Í 35 tilvika létu menn undan vilja
meirihlutans.
Tilraun Solomons Asch. Rannsakaði fylgispekt
(conformity). Tilraun Asch var hvati fjölda
annarra rannsókna.
17
Fylgnirannsóknir og fylgnitalan
Eru algengustu rannsóknir í sálfræði, könnuð eru
tengsl milli tveggja eða fleiri breyta
Þegar kannað er samband tveggja breyta er oftast
reiknuð fylgnitala sem gefur til kynna hversu
sterkt samband breytanna er. Pearsons r
Fylgnitalan r liggur á milli -1 og 1. Ef
fylgnitalan er 0, er engin fylgni milli
breytanna. Því nær sem fylgnin fer -1 og 1, þeim
mun sterkari er fylgnin. Fylgnin er jákvæð ef
fylgnitalan er hærri en 0 en neikvæð ef hún er
minni en 0
18
Fylgniaðferðin
19
Fylgniaðferðin
  • Rétt er að segja að fylgnistuðullinn taki gildi á
    bilinu -1 til 1
  • Sé formerki fylgnistuðulsins er talað um
    jákvæða fylgni
  • Sé formerki fylgnistuðulsins - er talað um
    neikvæða fylgni
  • Formerkið segir ekkert til um styrk fylgninnar
    heldur í hvora áttina hún gengur

20
Tafla 10.3. Meðaltal fylgnitala úr margvíslegum
rannsóknum. Gefin er fylgnitala, r, og fjöldi
þátttakenda (N) í hinum ýmsu rannsóknum.
Rannsókn r N
Áhrif sykurneyslu á hegðun og hugarstarfsemi barna 0.00 560
Áhrif aspiríns til að draga úrlíkum á dauða af völdum hjartaáfalls 0.02 22.071
Einkunnir í framhaldsskóla og frammistaða á vinnustað 0.16 13.984
Nikótínplástur (í samanburði við lyfleysu) og reykingabindindi 0.18 5.098
Áhrif stinningarlyfsins Viagra við að bæta kynhegðun karla 0.38 779
Fylgispekt í rannsóknum sem nota verkefni Asch (mat á línulengd) 0.42 4.627
Hæð og þyngd fullorðinna í Bandaríkjunum 0.44 16948
21
Siðferði í sálfræðirannsóknum
Gæta verður þess að misbjóða ekki þeim sem verið
er að rannsaka hverju sinni
Nokkur meginatriði úr Nürnberg-siðareglunum1.
Þátttakandi verður að gefa samþykki sitt af fúsum
og frjálsum vilja.2. Tilraunin verður að fela í
sér samfélagslegan ávinning og má ekki velta
duttlungum vísindamannsins.3. Framkvæma ber
tilraunina þannig að hún valdi ekki ónauðsynlegum
líkamlegum og andlegum þjáningum.4. Mögulegur
ávinningur rannsóknarinnar verður ætíð að vega
þyngra en áhættan.5. Einungis vel hæfir
vísindamenn mega framkvæma rannsóknir í
vísindaskyni.6. Þátttakandi skal eiga þess kost
að hætta í rannsókninni ef hann telur sig ekki í
stakk búinn til að ljúka henni af líkamlegum eða
sálrænum ástæðum.
Tvær rannsóknir sem gerðar voru í sálfræði sem
ollu miklu fjaðrafoki á sínum tíma. Ýttu undir að
menn hefðu siðareglur í rannsóknum. Hlýðnitilraun
Milgrams og fangelsistilraun Zimbardos
22
Siðferði í sálfræðirannsóknum
Hlýðnitilraun Milgrams. Auglýst var eftir fólki
til að taka þátt í tilraun og fékk það greitt 4
fyrir. Þátttakendum var tilkynnt að verið væri að
athuga áhrif refsinga á nám. Þeim var sýndur
orðalisti og sagt að refsa nemanda í hvert skipti
sem hann gerði villu. Refsingin var stig hækkandi
raflost frá 30 af 450 voltum í 30 volta þrepum.
Þátttakendur hittu nemandann og fengu að sjá inn
í klefa þar sem honum var komið fyrir og hvernig
hann var tengdur við rafskautin. Þátttakanda var
komið fyrir við stjórnborð þar sem hann gat stýrt
raflostunum. Um var að ræða blekkingu. Engin
raflost voru gefin, nemandi var vitorðsmaður
rannsóknarstjóra og viðbrögð nemanda voru leikin
af segulbandi. Milgram vildi sýna með þessu að
hægt væri að fá venjulegt fólk til að valda öðrum
sársauka ef það sjálft bar ekki ábyrgð á því sem
var gert. Milgram líkti þessu við óhæfuverk
nasista sem þeir framkvæmdu á þeim forsendum að
þeir væru að hlýða fyrirmælum yfirboðara sinna.
23
Siðferði í sálfræðirannsóknum
Fangelsistilraun Zimbardos Þessi tilraun var gerð
við Stanford háskóla í USA. Óskað var eftir
sjálfboðaliðum úr hópi stúdenta. Óskað var eftir
karlkyns stúdentum, 75 sóttu um og 24 voru
valdir. Hópnum var skipt í tvennt (teningi var
kastað), í fangaverði og fanga. Markmiðið með
þessari tilraun var að leita svara við
spurningunni Hvað gerist þegar gott fólk er sett
í vondar aðstæður? Eru þeir sem koma illa fram
við samferðrmenn sína endilega alltaf illa eða
verr innrættir en við hin?Fangavörðum var sagt
að þeir yrðu að taka hlutverk sitt alvarlega og
að þeim væri ætlað að halda uppi lögum og reglu
til að fangar sýndu þeim tilhlýðilega virðingu.
Það sem gerðist var að eftir 6 daga var
tilrauninni sjálfhætt. Þeir sem léku fangaverði
áttu erfitt með að greina sjálfa sig frá því
hlutverki sem þeir voru ráðnir í. Nánast öll
hegðun þeirra, hugsun og tilfinningar
gjörbreyttust. Persónueinkenni sem höfðu verið að
mótast alla ævi voru ekki til staðar hjá
fangavörðum. Ljótustu og illræmdustu hvatir manna
komu upp á yfirborðið. Kvikmyndin Das Experiment
er byggð á þessari tilraun.
Fangavörður og fangi
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com