Title: Geislun og geislavirkni
1Geislun og geislavirkni
2Atómið
- Atómið hefur róteindir og nifteindir í kjarna en
rafeindir á braut umhverfis. - Kjarninn er afar lítill, þvermálið er
- 10-14 m en þvermál atóms er ekki minna en 10-11m
3- Við getum dregið helstu atriði um agnir atómsins
saman í eftir farandi töflu
4Táknmál
- Við setjum upp heiti frumefnanna (A) með
sætistölu (Z) og massatölu (M) á eftirfarandi
hátt
Sætistalan er fjöldi róteinda í
kjarna. Massatalan er samanlagður fjöldi róteinda
og nifteinda í kjarna
5Samsætur efna
- Samsætur kallast ólíkar gerðir sama frumefnis.
- Munurinn felst í ólíkum fjölda nifteinda í kjarna
og þar með er massi samsætanna ekki sá sami.
6Stöðugleiki kjarna
- Kjarnar eru misjafnlega stöðugir. Sumir er mjög
stöðugir og haldast alltaf óbreyttir. Aðrir eru
óstöðugir og brotna upp eftir einhvern tíma. - Hvort kjarni er stöðugur eða óstöðugur ræðst af
hlutfalli p og n í kjarnanum.
7- Fyrir léttari kjarna gildir að þeir eru stöðugir
ef fjöldi nifteinda er sá sami og fjöldi
róteinda. - Fyrir þyngri kjarna þurfa nifteindirnar að vera
fleiri. - Engir stöðugir kjarnar eru með hærri sætistölu en
83.
8Orka í kjarnahvörfum
- Við kjarnaklofnun og kjarnasamruni myndast
stöðugri kjarnar en voru fyrir. - Við samruna losnar meiri orka á kjarneind og þar
með á kg, en við klofnun losnar meiri orka á
hvert atóm.
9Geislavirkni
Óstöðugir kjarnar brotna upp eftir einhvern
tíma og kallast það ferli hrörnun.
- Við hrörnunina myndast úr upphaflega kjarnanum
(móðurkjarni) nýr kjarni (dótturkjarni) auk
lítillar agnar sem þeytist frá dótturkjarnanum á
miklum hraða.
10Tegundir geislunar
- Alfageislun
- Agnirnar sem losna eru alfaagnir en það eru í
raun He-kjarnar sem eru tvær róteindir og tvær
nifteindir. - Geislunin verður til vegna fráhrindikrafta milli
jákvæðra hleðsla Coulomb kraftur
11- Betageislun
- Agnirnar sem losna eru betaagnir en það eru í
raun rafeindir. - Rafeindirnar myndast í kjarna við það að
nifteind hrörnar í rafeind og róteind. - Dótturkjarninn hefur því hærri sætistölu en
móðurkjarninn.
12- Gammageislun
- Gammaagnir eru orkumiklar ljóseindir og
gammageislun er því rafsegulgeislun. - Geislunin myndast þegar kjarnar aförvast með því
að geisla frá sér orku sem rafsegulgeislun eða
ljóseindir.
Gammaagnir eða ljóseindir eru massalausar og
óhlaðnar. Þær flytja því aðeins orku frá
kjarnanum
13- Nifteindageislun.
- Við hrörnun ýmissa kjarna losna nifteindir sem
mynda nifteindageislun. - Dæmi um losun nifteinda er hrörnun Úran þar sem
frjálsar nifteindir gegna lykil-hlutverki í að
viðhalda kjeðuverkun.
14Yfirlit yfir geislun
15Kjarnajöfnur
- Notum táknmál til að skrifa kjarnajöfnur. Sem
dæmi Ra-226 hrörnar í Rn-222 og sendir frá sér
?-ögn
Athugið að summa massatalna verður að vera sú
sama beggja vegna við örina. Sama gildir um
summu sætistalnanna.
16Kjarnajöfnur
- Þegar kjarnajafna er stillt þarf að gæta að summu
massatalnanna og sætis- talnanna
Niðurstaðan er að ögnin sem myndast er ?-ögn,
þ.e. rafeind, og því er I-131 ?-virkt. Sömu
aðferð má nota til að finna móðurkjarnann eða
dótturkjarnann ef annað er þekkt.
17Helmingunartími
- Ekki er hægt að segja til um hvenær tiltekinn
óstöðugur kjarni hrörnar. Aðeins er hægt að
segja til líkurnar á að það gerist innan einhvers
tímabils. - Hins vegar er hægt að segja til um eftir hve
langan tíma tiltekinn fjöldi kjarna í sýni hefur
hrörnað. Ef helmingur kjarna hefur hrörnað eftir
einhvern tíma er sá tími kallaður helmingunartími
efnisins.
18Helmingunartími
- Helmingunartími segir eftir hve langan tíma
helmingur af óstöðugum kjörnum hefur hrörnað. - Helmingunartími fyrir C-14 er um 5600 ár. Það
merkir að á 5600 árum hrörna helmingur C-14
kjarna í sýni. - Fyrir sérhvern helmingunartíma sem líður
helmingast fjöldi óstöðugra kjarna og geislunin
minnkar um helming.
19Helmingunartími
- Helmingunartími C-14 er um 5700 ár. Það þýðir að
á 5700 árum klofnar helmingur C-14 kjarnanna og
styrkur C-14 í efninu helmingast.
20Geislavá
- Þegar geislavirkni uppgötvaðist fyrst gerði
enginn sér grein fyrir skaðsemi hennar. Hún
þótti sniðug og voru geislavirk efni sett í alls
konar hluti eins og drykki og tannkrem.
21Geislavá
- Skaðsemi geislunar felst í jónunarhæfni
geislunarinnar. - Skaðsemin getur falist í
- jónun efna í frumu sem getur leitt til dauða
frumunnar - jónun erfðaefnis frumunnar sem skemmir DNA og það
getur valdið stökkbreytingu, svo sem
krabbameinum. - ef fruman er kynfruma getur stökkbreytingin komið
fram í afkomendum
22Geislavá
- Stórsæ áhrif jónandi geislunar er m.a.
- Myndun og hugsanleg örvun krabbameins
- Erfðagallar
- Ófrjósemi
- Staðbundinn skaði á yfirborði líkamans, brunasár,
húðroði - Vagl, ský á auga
- Skaði á blóðmyndun
23- Vægistuðlar ICRP fyrir einstaka líffæravefi
Vefur (líffæri) Vægisstuðull
vefs/líffæris, wT Samtala wT
gildaRauður beinmergur,ristill, lungu,
magi,brjóst, aðrir vefira
0,12
0,72Kynkirtlar
0,08 0,08B
laðra, vélinda, lifur,skjaldkirtill
0,04
0,16Yfirborð beina,
heili,munnvatnskirtlar, húð
0,01 0,04 - Heild
1,00
24Geislavá
- Tjónið sem geislunin veldur er mjög háð magni
þeirra geislaagna sem lenda á efninu. - Þrír lykilþættir eru
- 1. Tími sem geislun varir, því styttri tími því
minni líkur á tjóni. - 2. Fjarlægð frá geislagjafa, geislunin fellur
mjög ört með fjarlægð. - 3. Styrkur geislunar, veik geislun þýðir færri
agnir og minni líkur á tjóni.
25Bakgrunnsgeislun
- Í umhverfi okkar er ávallt einhver geislun. Sú
geislun kemur frá geislavirkum efnum í umhverfinu
og utan úr geimnum. Hluti af geisluninni er af
völdum mannsins, t.d. vegna orkuframleiðslu og
lækningatækjum. - Á Íslandi er bakgrunngeislunin fremur lág vegna
þess hve lítið er af geislavirkum efnum í bergi.
26Bakgrunnsgeislun
27Bakgrunnsgeislun
Xkcd radiation chart
28Hagnýting geislavirkra efna
- Hagnýting geislavirkra efna og geislunar er með
mismunandi hætti. Sem dæmi má nefna - Kjarnaklofnunarver
- Kjarnasamrunaver
- Gerilsneyðing matvæla
- Til lækninga
29Kjarnaklofnunarver
- Kjarnaklofnunarver nota orkuna sem losnar við
klofnun U-kjarna til framleiðslu raforku. - Lykilatriði í ferlinu er keðjuverkunin. Til að
örva hrörnunina er n skotið á U kjarnann, myndast
þá mjög óstöðug samsæta sem klofnar strax. Við
það myndast nýjar n sem rekast á nýja kjarna.
30Eldsneytið
- Til að viðhalda keðjuverkuninni þarf að hafa nógu
mikið af U-235. - Í náttúrulegu úrani eru aðeins 0,7 U-235 en
99,3 eru U-238. - U-238 tekur til sín nifteind, myndar U-239 og
geislar frá sér ?-ögnen myndar ekki nýja
nifteind og viðheldur ekki keðjuverkuninni. - Unnt er að hækka hlutfall U-235 í sýnimeð
auðgun.
Úran náma í Ástralíu
31Kjarnklofnunarver
32Kjarnaklofnunarver
33(No Transcript)
34Kostir og gallar
- KostirMikil orka á hvert kg af eldsneytiLítil
losun gróðurhúsaloftegunda - GallarMikil varmamengunGeislavirkur
úrgangurMyndun geislavirkra efna í
byggingunniTakmarkaður líftími (30
ár)SlysahættaTakmarkað magn eldsneytis
35Kjarnasamrunaver
- Léttir kjarnar renna saman og mynda þyngri kjarna
og losa orku um leið. Sú orka er margfalt meiri
á hverja ögn (og þar með hvert kg) heldur en
losnar við kjarnaklofnun. - Í kjarnasamrunaverum er vetni (tví- og þrívetni)
notað til að mynda helíum. - Til að það geti orðið þarf mjög hátt hitastig.
36(No Transcript)
37ITER
38(No Transcript)
39Í lækningum
- Geislameðferð
- - sem hluti af meðferð við sjúkdómum
- - getur verið ytri geislun og innri
- Rannsóknir
- - við greiningu sjúkdóma og rannsóknir á
starfsemi - ákveðinna líffæra
- Myndataka
- -röntgenmyndir
- -PET
- -NMR - MRI
40Geislameðferð
- Notað sem hluti af meðferð við krabbameini.
- - Ytri geislun á sjúkling
- Kröftugum geisla oftast gammageisla er beint
að meininu. Stundum einnig notuð rafeinda eða
róteindageislun.