Title: 2.
12.ÞROSKASÁLFRÆÐI VERÐUR TIL
2Íslenzkar gátur
- Fyrstu tíu vetur barn,
- tuttugu ára úngur,
- þrjátíu ára fullorðinn,
- fjörutíu ára í sínum blóma,
- og þá hvorki aptur né fram,
- fimmtíu ára athugaaldur,
- sextugur með aldri,
- sjötugur færist aldur á,
- áttræður fellur minnið frá,
- níræður þarf staf að fá,
- hundrað ára náði guð þá.
3Inngangur
- Efni kaflans er rannsóknir og saga
þroskasálfræðinnar. - Áhugi á þroskasálfræði hefur aukist á þessari
öld. - Lenging bernskunnar.
- Lengri skólaganga.
- Þroskasálfræði Fæst við breytingar sem verða á
hegðun og sálarlífi samfara aldri. - Þroskinn er örastur framan af ævi. Þá er mest
hætta á þroskaskaða. - Þroska fullorðinna verður ekki sinnt í þessari
bók þótt það sé verðugt viðfangsefni.
4- Þorski er örastur framan af og þá er mest hætta á
að erfið reynsla geti haft skaðleg áhrif - Öll dýr eru viðkvæmust fyrir umhverfisáhrifum
meðan þau eru að þroskast - Þroskasálfræðin varð snemma sjálfstæð fræðigrein
og er eins elsta sjálfstæða undirgrein
sálfræðinnar ásamt tilraunasálfræði
5- Nokkur meginstef í rannsóknum á sviði
þroskasálfræði - Er þroskaferill mannsins jafn og hægfara eða
stigundinn? - Má greina ákveðin hættu- eða næmiskeið í þroska
og hversu auðvelt er að bæta upp þroskatap - Hvort setja erfðir eða umhverfi meira mark á
atgervi fólks? - Þar sem engar tvær mannverur eru nákvæmlega eins
hljótum við að spyrja hvernig einstaklingseðlið
verður til?
6- Brautryðjendur þroskasálfræðinnar
- Bandaríski sálfræðingurinn James Mark Baldwin
frumkvöðull - Alfred Binet sem bjó til fyrsta nothæfa
greindarprófið - Sigmund Freud
- Rannsóknaraðferðir
- Langtíma- og þverskurðarsnið
- Skyldleikarannsóknir
7ÞRÓUNARSÁLFRÆÐI ER SKYLD VÍSINDAGREIN
- Þroskun Breytingar sem verða í fari mannsins
yfir æviskeiðið. - Þróun Breytingar sem orðið hafa á tegundinni
maður í tímans rás. - Þessu tvennu var áður blandað saman.
- Þrír meginþættir sem kenningar um þroskun þurfa
að ná til - Uppruni/Orsök hegðunar og hegðunarmynstra.
- Hvernig viðhelst hegðun.
- Hvernig hegðun breytist.
8frh.
- Flestar kenningar miðaðar við afmarkaða þætti sem
endurspeglast með eftirfarandi kaflaskiptingu
þessarar bókar - Líkamsþroska
- Greind
- Máltöku
- Tilfinningar
9- Uphhaf þróunarsálfræðinnar rakið til bókar
Darwins Uppruni tegundanna (1859) - Fjallar um atferli og sálarlíf manna og dýra
- Leitaðist við að skýra breytingar sem hafa orðið
á atferli, tilfinningalífi og atgervi tegundanna - Áhrifa þróunarkenningarinnar gætir í því að
gengið er út frá því að lögmálið um náttúruval
hafi haft áhrif á þróun sálfræðilegra eiginleika
frá einni kynslóð til annarrar
10- Líkamshæð og offita
- Karlar eru að jafnaði hærri en konur og konur
sækjast eftir maka sem er nokkru hærri en þær - Varði fjölskylduna
- Þegar fæðuframboð var takmarkað áttu þeir sem
höfðu góðan forða á sér meiri möguleika á að
komast af en aðrir - Í dag vandamál þegar framboð á mat er nægt
11- Almennt þurfa þroskakenningar að skýra
- Uppruna eða orsakir hegðunar og hegðunarmynstra
- Hvernig hegðun viðhelst
- Hvernig hún breytist yfir æviskeiðið
12NOKKUR MEGINSTEF
- Fjögur meginstef í þroskasálfræði
- Lúta að ýmsum álitaefnum um eðli þroska og hvaða
þættir hafa afdrifaríkust áhrif á hann
13Er þroskaferillinn samfelldur eða stigbundinn?
- Samfelldur þroski Jafn og hægur.
- Þroski í stökkum Miklar breytingar á afmörkuðum
tímabilum. - Kenningar um félags- og tilfinningaþroska gera
yfirleitt ráð fyrir samfelldum þroska. - Kenningar um vitsmuni og hreyfiþroska gera ráð
fyrir þroska stökkum. - Mynd 2.2 bls. 41 sýnir mun á stökum og samfelldum
þroskaferli. - Kenningar Piaget, Freud og Kohlberg gera ráð
fyrir þroskastigum.
14Fernt þarf að vera til staðar
- Þroski á hverju stigi um sig þarf að hafa ákveðin
samkenni og oftast verða framfarir á mörgum
sviðum samtímis. Eðlismunur þarf að vera á þroska
á ólíkum stigum, þ.e. ekki er nóg að barnið sýni
einungis meira af tiltekinni hegðun. - Í annan stað verður röð stiganna að lúta ákveðnum
reglum, þau mega ekki vera í handahófsröð.
Einfaldara stig A verður að koma á undan flóknara
stigi B o.s.frv. Þroskastigin eru þó ekki
rígbundin við aldur.
15- c) Ekki má heldur sleppa stigi úr (þá verður rof
í þroska) og alls staðar í heiminum ganga börn í
gegnum stigin í sömu röð. - d) Skil á milli stiga eru að jafnaði skörp engu
að síður má greina ákveðin þrep innan stiga - Undirbúningsþrep
- Jafnvægisleitni
- Lokaátak sem gerir barni kleift að stökkva yfir á
næsta stig (Flavell)
16Hættu eða næmisskeið
- Það eru vísbendingar um að áhrif umhverfis á
lífverur séu mest þegar þroskinn er örastur, þ.e.
í æsku. - Ekki þar með sagt að hægt sé að móta börn að
vild. - Ákveðin örvun á ákveðnum tímabilum er nauðsynleg
til að ná þroska. - Næmiskeið Tímabil þar sem áhrif ákveðinna
umhverfisþátta eru í hámarki. - Hættuskeið Tímabil þar sem lífvera er móttækileg
fyrir ákveðnum umhverfisáhrifum og lærir ekki að
svara þeim umhverfisáhrifum nema verða fyrir þeim
á viðkomandi tímabili.
17frh.
- Mörkun Tilhneiging ungviðis til að elta það
fyrsta sem er á hreyfingu eftir að þau fyrst koma
í heiminn. (sjá nánar á mynd 2.3 á bls.44). - Ekki er talið að þroskun manna sé eins mikið
komin undir hættuskeiðum eins og margra annarra
dýra. Þroski taugkerfisins gerir manninn
sveigjanlegri. - Sumir telja að næmisskeið geðtengsla sé á
tímabilinu 6-18 mánaða hjá börnum. - Næmisskeið máltöku er frá 2-12 ára aldurs.
- Næmisskeið félagsmótunar er 3-6 ára.
18Erfðir og umhverfi
- Erfðahyggjumenn Telja að arfgerð ráði mestu um
þroska mannsins og umhverfi hafi takmörkuð áhrif.
- A.R. Jensen og H.J. Eysenck telja að 80 greindar
ákvarðist af erfðum. - Umhverfishyggjumenn Telja að umhverfi ráði mestu
um þroska mannsins. - Leon Kamin telur að 80 greindar ákvarðist af
umhverfi. - Skoðið mynd 2.4 bls. 45. Hún sýnir vaxandi
fylgni greindar með vaxandi skyldleika. Styður
frekar erfðahyggju.
19Frh.
- Fyrirvari Oftast deila skyldir einnig umhverfi.
- Fjölskyldustærð hefur áhrif á greinarvísitölu.
Því fleiri sem systkini eru því lægri verður
greindarvísitala yngstu systkina samanborið við
þau elstu (sjá mynd 2.5 bls. 46). - Erfðir hafa einnig áhrif á tíðni geðsjúkdóma eins
og t.d. geðklofa (sjá mynd 2.6 bls. 47). - Mynd 2.6 á bls. 47 sýnir bæði fram á áhrif
umhverfis og erfða. Það er sterk fylgni milli
eineggja tvíbura en alls ekki algjör. - Nú er algeng skoðun að nær sé að tala um
gagnvirkt samband umhverfis og erfða. D.O. Hebb
Umhverfi er 100 háð erfðum, erfðir eru 100
háðar umhverfi.
20Einstaklingar eða hópsálir
- Hvað er það sem gerir okkur að þeim einstaklingum
sem við erum? - Hvað eigum við sameiginlegt með öðru fólki og
hvað gerir okkur einstök? - Mælingar á mannamun greindarpróf
- Markmið greindarprófa að finna hverjir eiga við
einhvers konar vandamál að stríða - Aðrir leggja áherslu á samkenni
- Piaget um vitsmunaþroska
21- Foreldrar taka eftir að börnin þeirra eru ólík í
ýmsu t.d. þegar kemur að skapgerðarþáttum - Rannsóknir benda til að þeir séu varanlegir
- Rannsókn Kagans og Snidmans frá 2004 bendir til
að skapgerðareinkenni geti átt rætur að rekja til
einhverra líffræðilegra ákvarðaðra eða meðfæddra
þátta - Greindu tvær afgerandi persónuleikageðrir hjá
börnum - Viðbrigðin og óviðbrigðin
22- Viðbrigðin börn feimin og uppburðarlaus börn,
heft eða innilokuð sem unglingar - Óviðbrigðin óheft sem börn og opnir unglingar
- Einstaklingseðlið segir til sín strax frá fyrstu
tíð
23FYRSTU ÞROSKASÁLFRÆÐINGARNIR
- 1880-1912 Fyrstu ár þróunarsálfræði sem
sjálfstæðrar fræðigreinar. - 1879 Upphafsár sálfræðinnar Fyrsta
tilraunastofan stofnuð af Wilhelm Wundt. - Sumir nemenda Wundt höfðu sérstakan áhuga á
þroska og þróun. - Barnadagbækur Bækur þar sem þroski barna var
skráður af fræðimönnum, t.d. Dietrich Tiedemann
og Charles Darwin. Eldra en rannsóknir Wundt.
24frh.
- Þróunarkenning Darwins efldi áhuga á þróun og
þroska. - Francis Galton rannsakaði mismun einstaklinganna
og þróaði tölfræði sem tækni. - Gregor Mendel gerði uppgötvanir í erfðafræði
(rannsóknir hans voru þó ekki almennt kunnar). - Wilhelm Preyers Gaf út fyrstu bókina í
þroskasálfræði ,,Hugsun barns árið 1881. Bókin
byggði á kerfisbundnum rannsóknum sambærilegum
við þær sem gerðar eru nú á tímum.
25James Mark Baldwin (1891 1934)
26- Ekki sá þekktasti en hafði veruleg áhrif
- Sálfræðingur og heimspekingur
- Taldi tengsl á milli þroska og þróunar
- Hallaðist að hlutverksstefnunni
- Sálfræðin fjallaði um hlutverk atferlis og
hugsana - Lagði út frá þróunarkenningu Darwins
27Helstu hugmyndir Baldwins
- Hugur barnsins og andlegt atgervi þroskast í
gegnum ákveðin stig sem eiga sér jafnframt
hliðstæðu í þróun vitsmuna meðal tegundanna - Þroski hugsunar og vitsmuna (sem og þróun) er
háður örvun frá umhverfinu (lífveran hegðar sér
gagngert á tiltekinn hátt til að fá umbun frá
umhverfinu) - Meginaflvaki þroska er aðlögun sem greina má
annars vegar í samlögun og hins vegar aðhæfingu.
Hið fyrra felst í að meðtaka upplýsingar eða
áhrif frá umhverfinu inn í þau kerfi sem fyrir
eru, en hið síðara í því að lífveran verður að
breyta kerfunum sem fyrir eru til að geta
meðtekið ný áhrif
28G. Stanley Hall (1844-1924)
29Frh.
- Oft kallaður fyrsti þroskasálfræðingurinn.
- Hafði verið nemandi Wundt.
- Var frumkvöðull í sálfræði í Bandaríkjunum,
stofnaði sálfræðirannsóknarstofu 1883, varð
háskólakennari í sálfræði 1884 og hóf útgáfu
sálfræðitímarits árið 1887. - Áhugi Hall beindist frekar að hagnýtri en
fræðilegri sálfræði.
30Frh.
- Hann rannsakaði samband persónuleika barna og
aðlögunarvandamála. - Áhrif umhverfis og félagslegra aðstæðna á getu
manna til að koma sér áfram. - Líta má á rannsóknir hans sem vísi að
atferlisstefnunni. - Hall þróaði spurningalista sem aðferð við
rannsóknir. Lét bæði börn og foreldra svara
spurningalistum sínum.
31frh.
- 1891 hóf Hall útgáfu tímarits um þroskasálfræði.
- 1904 gaf hann út fyrstu kennslubókina um
unglingsárin. - 1892 varð Hall fyrsti forseti bandaríska
sálfræðingafélagsins. - Hall setti ekki fram neinar umfangsmiklar
kenningar í þroskasálfræði heldur einbeitti sér
að reynslu-rannsóknum. - Hall átti mikinn þátt í að skapa grunn fyrir
frekari rannsóknir.
32Alfred Binet (1857-1911)
33- Binet bjó til fyrsta greindarprófið ásamt
fleirum. - Binet-prófið er enn í notkun í endurbættum
útgáfum. - Rannsakaði minni og vitsmuni með nútímalegum
aðferðum. - Rannsakaði meðal annars spönnun minnis.
34frh.
- Terman og Goodard þýddu og stöðluðu greindarpróf
Binet í Bandaríkjunum. Þeir lögðu áherslu á að
þau mældu meðfædda greind sem var annar
skilningur en hjá Binet. Þeir vildu nota
greindarpróf til að flokka frá þá sem hefðu
óæskilega erfðaeiginleika. Í Bandaríkjunum voru
sett lög um vönun þroskaheftra. - Binet áleit að greindarpróf sín væru hagnýt tæki
til að mæla þroskastig greindar. Hann hafði áhuga
á því hvernig mætti efla greindarþroska.
35Sigmund Freud (1856-1939)
- Einn áhrifamesti maður sálfræðinnar, hafði áhrif
langt út fyrir sálfræðina, á vestræna menningu. - Freud fékkst við geðlæknisfræði enda var hann
geðlæknir. - Þroskasálfræði Freuds varð til í tengslum við
geðlæknisfræði-kenningar hans.
36Helstu hugmyndir
- Hann vakti athygli á því að þroski á fyrstu árum
ævinnar, og framkoma fullorðinna í garð barna,
gæti haft afdrifarík áhrif til langframa - Þannig taldi hann að persónuleikinn mótaðist í
mikilvægum dráttum á fyrstu fimm árunum eða svo
og til að öðlast skilning á sálarástandi fólks
þyrfti að kanna þroskasögu þess - Hann taldi að þroskinn færi í gegnum ákveðin stig
og að stigin afmörkuðust af líffræðilegu og
lífeðlislegu þroskaferli
37- Hann byggði hugmyndir sínar að nokkru á
þróunarkenningunni þar sem hann taldi að
líffræðilegar hvatir og hvernig þær mótuðust af
umhverfinu væru driffjaðrir sálarlífsins (hvatir
sem menn fá í arf frá dýrslegri fortíð sinni) - Rétt eins og Darwin taldi Freud að markmið
hvatanna væri annars vegar að komast af og hins
vegar að auka kyn sitt (eða tryggja
erfðarþáttunum frekara líf)
38- Hann vakti athygli á hinu sérkennilega
bernskuóminni - Hann skilgreindi hugtakið Ödipusarduld sem lifað
hefur áfram í menningu Vesturlanda - Verulega umdeild er sú hugmynd hans að börn séu í
einhverjum skilningi kynverur - Hann gekk út frá því að verulegur hluti
sálarlífsins væri dulvitaður
39- Mjög umdeildur
- Verið að endurvekja sumar hugmyndir hans í dag
- Bersnkuóminni
- Vísar til þeirrar staðreyndar að fæst fólk er
fært um að muna hvað dreif á daga þess fyrir 3ja
ára aldur - Leitaðist við að skýra þroskaferilinn í kenningum
sínum en hann gerði bara athuganir á fullorðnu
fólki aðallega konum - Þroskakenningin lýtur aðallega að þroskaferli
stráka
40- Löggengi hegðunar löghyggja
- Öll hegðun á sér orsakir rétt eins og önnur
náttúruleg fyrirbæri - Taka þarf tillit jafnt til líffræðilegra sem og
sögu einstaklings þegar hegðun hans og sálarlíf
er skoðað - Samband milli hegðunarvandkvæða á fullorðinsárum
og ójafnvægis á uppvaxtarárum - Stöðnun getur orðið hvenær sem er á
þroskaferlinum ýmist vegna of mikillar eða of
lítillar örvunar
41- Afturhvarf er einn af varnarháttum sjálfsins,
viðkomandi bregst við áföllum eða innri
togstreitu með því að hverfa til baka á lægra
þroskastig - Lækningaraðferð Freuds
- Grafast fyrir um orsakilr taugaveiklunar og
geðraskana með því að grafa í undirdjúp
sálarlífsins og hörfa aftur til bernskuáranna - Kynhvöt og árásarhvöt
- Mikilvægt hvernig börn fá útrás fyrir þær hvatir
í bernsku - Grunnhugmynd kenningar um geðtengsl
42AÐFERÐIR VIÐ ÞROSKARANNSÓKNIR
- Ýmsar aðferðir
- Helsti óvissuþátturinn er tíminn
- Margar samsláttarbreytur, aðrar breytur en þær
sem eru undir stjórn rannsakanda, tengjast
sögulegum tíma - T.d. þroski barna í dag annar en hann var fyrir
50 árum - Rannsóknir varða mörg svið
- Geta farið fram á sjúkrahúsum, leikskólum,
skólum, stofnunum, heimilum og rannsóknarstofum
43- Siðareglur eru strangar
- Ekkert má aðhafast sem getur haft áhrif á
þroskaferil barna sem taka þátt í rannsókn - Mikilvægt að fylgjast með börnum og ungmennum í
sem eðlilegustu umhverfi - Þá hafa rannsakendur síður áhrif á hegðun
- Undirkaflar
- Rannsóknarsnið
- Aðferðir við gagnasöfnun
- skyldleikarannsóknir
44Rannsóknarsnið
- Langtímasnið og þverskurðarsnið
- Langtímasnið sami hópur rannsakaður aftur og
aftur á ákveðnu tímabili - Þverskurðarsnið stöðugt tenkir nýir hópar fyrir
hvert aldursskeið á því tímabili sem rannsóknin
nær yfir - Dæmi bls. 73
45Langtíma- og þverskurðarrannsóknir
- Langtímaaðferð Sami hópur einstaklinga er
rannsakaður yfir lengra tímabil. - Dæmi Börn sem fædd eru 1995 er rannsökuð árið
2005 (10 ára), 2015 (20 ára) og 2025 (30 ára). - Þverskurðarrannsókn Mismunandi aldurshópar eru
rannsakaðir á sama takmarkaða tímabilinu. - Dæmi Árið 2005 eru rannsakaðir þrír hópar, 10
ára (fæddir 1995), 20 ára (fæddir 1985) og 30 ára
(fæddir 1975).
46frh.
- Samanburður á langtímaaðferð og þverskurðaraðferð
- Dæmi um langtímarannsókn Gáfubarnarannsókn Lewis
Terman. - Rannsóknin kollvarpaði þeirri skoðun að mjög
greind börn væru andlega og líkamlega veiklaðri
en aðrir. - Hófst 1921.
- Börn fædd 1907-1912.
- Greindavísitala yfir 135 þegar rannsóknin hófst.
47frh.
- Gáfumenn áttu að vera sérstakir,
- líkamlega veiklaðri,
- nærsýnir,
- Vinafáir
- tilfinningalega bældir
- hættara við geðheilsubresti
- Nördar
- Markmið rannsóknar að athuga hvað væri til í
þessum hugmyndum
48- Lífsafkoma könnuð
- 1528 börn með frá upphafi, 671 kvk og 857 kk
- Öll með greindarvísitölu yfir 135
- Kannaður greindarþroski,
- áhrif GV, persónuleika og uppeldisaðstæðna á
lífsafkomu, lífshamingu, félagsleg samskipti og
fjölskyldulíf - Goðsögnin hefur ekki staðist, ofvitunum hefur
vegnað vel í lífinu, bæði í einkalífi og starfi
49- Vegnaði ekki öllum vel, það sem þar skipti sköpum
var - Skapgerð og félagslegar aðstæður
- Aðeins 3 höfðu átt við áfengisvanda að stríða
- Með fimm sinnum hærri meðaltekjur en meðaltekjur
í landinu - Höfðu allir gifst en 16 skilið
- Heimilisaðstæður skipta máli
50- Vandamál
- Lewis Terman lést 1956
- 1979 höfðu 40 þátttakenda fallið út
- Mikið magn gagna, þ.e. 4 milljónir atriða
- Samfélagið breyttist meðan á rannsókninni stóð
- Fræðilegt gildi takmarkað vegna óvissuþáttanna
51frh.
- Misvísandi niðurstöður eftir því hvort langtíma-
eða þverskurðaraðferð er beitt. - Greind virðist hnigna með aldri í
þverskurðarrannsóknum. - Sumum greindarþáttum hnignar en aðrir eflast í
langtímarannsóknum. - Hnignunin sem þverskurðarrannsóknirnar sýna er
vegna kynslóðamunar, meðal annars vegna
mismunandi menntunnar mismunandi kynslóða.
52Þverskurðarsnið
- Allar mælingar gerðar á sama tíma eða tímabli
- Tvö eða fleiri úrtök þátttakenda á ólíkum aldri
valin - Taka skamman tíma og niðurstöður liggja fljótt
fyrir - Helstu kostir
- Minni líkur á affföllum meðal þátttakenda
- Helsti galli
- Ólíkir aldusrhópar geta haft ólíkan
menningarlegan bakgrunn - Aldurshópahrif
53- Ef tölvuleikni fólks á ólíkum aldri könnuð er
víst að fleira en aldurinn hefur áhrif - Tvítugir hafa meiri leikni en sjötugir, leiknin
bæði bundin við lífaldur og menningarbundna þætti - Getur ekki veitt upplýsingar eiginlegar
þroskakúrfur einstaklinga - Geta gefið vísbendingar um breytingar sem verða
með hæakkandi aldri
54Samangurður á lang- og þver-
1 Langtímasnið Þverskurðarsnið
Fram-kvæmd Sami hópurinn rannsakaður aftur og aftur Mismunanid hópar rannsakaðir á sama tíma
Tími Breytilegur, getur numið áratugum Fremur stuttur, mánuðir, vikur, dagar
Gagna-söfnun Tekur jafnan langan tíma og sjálf rannsóknin. Mikið magn upplýsinga getur safnast saman. Skammvinn og oft skjót úrvinnsla
Helstu kostir Getur sýnt þroskaferil einstaklinga, stöðugleika ákveðinna eiginleika og áhrif tiltekinna atburða Hægt að safna oft mikilsverðum upplýsingum á skömmum tíma. Tiltölulega kostnaðarlítið. Lífil afföll í úrtaki. Ekki hætta á þjálfunarhrifum.
Helstu ókostir Tekur langan tíma og er kostnaðarsamt. Afföll þátttakenda, rannsakendaskipti, nýjar aðferðir og hugsanlega úreltar niðurstöður þegar þær liggja fyrir. Erfitt að breyta gangi rannsóknar þótt ný þekking komi til. Þátttakendur geta lært á prófin. Erfitt að endurtaka. Meðaltöl hópa notuð, sýnir ekki þroskaferil einstkalinga. Mismunandi fæðingarár þátttakenda er helsti óvssuþátturinn og skapar aldurshópahrif.
55Aðferðir við gagnasöfnun
- Fylgnirannsóknir
- Tilviksrannsóknir
- Beinar athuganir
- Klínískar rannsóknir
- Spurningalistakannanir
56Beinar athuganir
- Beinar athuganir er gerðar bæði í eðlilegu
umhverfi og við sérstakar rannsóknaraðstæður. - Beinar athuganir eru dýrar og tímafrekar.
- Erfiðara er að gera nógu víðtækar rannsóknir til
að alhæfa út frá þeim. - Eðlilegt umhverfi.
- Dæmigerðir hlutir eru til staðar.
- Barnið er vant aðstæðum.
- Barnið er ekki truflað.
- Sérstakar rannsóknaraðstæður.
- Meiri stjórn en í eðlilegum aðstæðum.
- Auðveldara að nota sérstakan búnað s.s. heilarit.
57Klínískar athuganir
- Klínískum rannsóknaraðferðum er beitt þar sem
vandamál kemur upp sem þarf að leysa. - Það að þurfa að leysa vandamál getur truflað
stjórn á aðstæðum. - Aðal markmiðið er að hjálpa ákveðnum einstaklingi
frekar en að leita almennrar þekkingar. - Fást oft við viðfangsefni sem ekki þykir rétt að
kalla fram t.d. sjúkdóma eða þroskafrávik.
58Tilraunir
- Öruggasta aðferðin og hægt að hafa stjórn á öllum
aðstæðum - Felur í sér
- inngrip, það sem rannskandi meðhöndlar
- frumbreytuna, þann rannsóknarþátt sem veldur
- mælir fylgibreytuna, þann rannsóknarþátt sem
fyrir áhrifum verður - Inngrip og meðhöndlun eru aðalsmerki tilraunar
- Alltaf samanburður
- Dæmigert að hafa tvo hópa, annan tilraunahóp og
hinn samanburðarhóp
59- Kostir
- Hægt að leiða líkur að því að um einhvers konar
orsakasamband sé að ræða á milli frumbreytu og
fylgibreytu - Aðstæður undir eins mikilli stjórn og hægt er
- Auðveldara að endurtaka en aðrar gerðir rannsókna
- Gallar
- Atferli og sálarlíf margbrotið og aldrei hægt að
hafa fullkomna stjórn á því - Oft tilbúnar aðstæður og því ekki raunverulegar
- Skortur á vistfræðilegu réttmæti
- Rannsóknarhrif
- Tilhneiging fólks að breyta hegðun þegar fylgst
er með því
60Skyldleikarannsóknir
- Tvíburarannsóknir
- Bornir saman eineggja eða tvíeggja tvíburar
- Fósturrannsóknir
- Reynt að komast að því hvort börn, sem ekki eru
alin upp hjá kynforeldrum sínum, líkjast fremur
kynforeldrum eða fósturforeldrum - Erfitt að segja hvort börn líkjast foreldrum
sínum vegna þess að foreldrar eru fyrirmyndir eða
vegna erfðaþátta - Rannsóknir sýna þó almennt
- Því skyldara fólk þeim mun meiri fylgni milli
ýmissa sálfræðilegra eiginleika
61Tvíburarannsóknir
- Tvíburarannsóknir eru notaðar til að skoða
samband umhverfis og erfða. - Eineggja tvíburar Frjóvgað egg klofnar í tvennt
sem myndar tvo einstaklinga með sama erfðaefni. - Tvíeggja tvíburar Tvö egg eru frjóvguð af sitt
hvorri sæðisfrumunni á sama tíma. - Tvíeggja tvíburar eru ekki skyldari en önnur
systkini en þeir alast upp á sama tíma og ættu
því að deila líkari aðstæðum.
62frh.
- Ýmist eru rannsakaðir tvíburar sem hafa alist upp
saman eða í sitthvoru lagi. - Sérstaklega eru eineggja tvíburar sem alist hafa
upp í sitthvoru lagi mikilvægir. - Sama erfðaefni.
- Mismunandi umhverfi.
- Mismunur á einstaklingum vegna mismunandi
umhverfis. - Eineggja tvíburar eru mjög líkir (sjá töflu
bls.82). - Munur vegna umhverfis birtist ekki aðeins á
sálfræðilegum þáttum heldur einnig á líkamlegum
(sjá mynd bls.83).
63Fósturrannsóknir
- Athuga börn sem alast upp hjá öðrum en
kynforeldrum sínum - Leitast við að meta hvort erfða- eða
umhverfisþátturinn vegi þyngra - Því óskyldara sem fólk er þeim mun ólíkara
reynist það samkvæmt rannsóknum - T.d. GV, geðklofi, persónuleikaþættir
- Könnun á fósturbörnum í Colorado rannókn bls. 84
64- Gallar
- Því skyldara sem fólk er, þeim mun meiri líkur á
að það deili umhverfi - Því líkara sem fólk er því líkari viðbrögð fær
það frá umhverfinu - Þó ekki sjálfgefið að börn sem búa í sömu
fjölskyldu búi við sömu heimilisaðstæður -
systkinaröð
65Siðareglur þroskasálfræðinga
- Gæta þarf mikillar varkárni
- Meginreglur eru skilgreindar í 16 liðum
- Reglur settar í kringum 1990
- Fimm höfuðákvæði reglanna (bls. 85 86)
- Óskaðlegar aðferðir
- Upplýst samþykki
- Blekking
- Nafnleynd og trúnaður
- Meðferð niðurstaðna
66Í hnotskurn
- Þroskasálfræðin álíka gömul og tilraunasálfræði
- Ein af elstu undirgreinum sálfræðinnar
- Þroski og þróun ekki það sama
- Þroskasálfræðingar einbeita sér að þroskasögu
einstaklinga - Nokkur meginstef í rannsóknum
- Samspil erfða og umhverfis
- Mikilvægi einstaklingseðlisins
- Greindarpróf binets einna þekktust
- Rannsóknaraðferðir hafa kosti og galla