Title: H
1Hávaði í umhverfi barnaFyrirlestraröð
Umhverfisstofnunar 15. nóvember 2005
- Hljóðhönnun skóla
- Ólafur Hjálmarsson, verkfræðingur
2Gildi hljóðhönnunar - Þarf frekari vitna við?
- Það er ótrúlega hljótt í Ingunnarskóla þótt þar
séu um 400 nemendur og nokkrir tugir kennara að
störfum. Í miðrýminu sem komið er inn í úr
anddyrinu eru tveir kennarar að snæða síðbúinn
hádegisverð, nokkrir nemendur sitja innan um
bókarskápana og lesa og enn aðrir eru að búa sig
undir að læra dans. Guðlaug Sturlaugsdóttir
skólastjóri kveðst hæstánægð með hvernig til
tókst með hönnun hljóðvistarinnar. -
- (Fréttablaðið 9. nóvember 2005)
3Hljóðhönnun skólaÁhrif ómtíma á hljóðstig
Ómtími húsnæðis T 0.5 sek T 1.5 sek
Hávaði frá vélum - 5 dB 0 dB
Hávaði frá nemendum -10 dB 0 dB
- Tempraður hljómur hefur áhrif áhrif hegðun
nemenda. Þeir eru að jafnaði háværari í
hljómmiklum rýmum.
4Hljóðvist í leikskólum
Til þess að tryggja jafnan og hæfilegan hljóm
yfir tíðnisviðið frá 125 til 4000 rið þarf að
reikna Það er ljóst af mældu ferlunum að engin
hljóðhönnun hefur farið fram Þróunin í Danmörku
og Svíþjóð er í þá átt að herða kröfur til
skólahúsnæðis
5Hljóðvist í matsal
Mældur ómtími í matsal skv. nýlegum
mælingum Þrátt fyrir að meðalómtími sé nærri
hæfilegum mörkum gerir langur ómtími á mikilvægu
tíðnisviði frá 1000 til 4000 rið ástandið mjög
erfitt Með einföldum aðgerðum má oft stórbæta
ástandið eins og myndin sýnir
6Eiginleikar heyrnarinnar
Myndin sýnir breytilega næmni heyrnarinnar eftir
tónhæð. Með hliðsjón af þessum eiginleikum eru
unnar vogkúrfur við útreikning á hljóðstigi sbr.
dB(A) og dB(C)
7Hljóðvist í skólum IHver er staðan og hvert
stefnum við?
- Við erum að glíma við uppsafnaðan vanda sem að
hluta til byggir á ófullnægjandi húsnæði og að
hluta til á breyttu umhverfi og kennsluháttum - Framtak Vinnueftirlitsins og Umhverfisstofnunar
að vekja athygli stjórnvalda og sveitarstjórna á
erfiðu ástandi í skólum landsins er lofsvert - Kortleggja þarf vandann með hljóðmælingum.
Mikilvægt er að mæla breytileika ómtíma eftir
tónhæð
8Hljóðvist í skólum IIHver er staðan og hvert
stefnum við?
- Endurskoða þarf ákvæði byggingarreglugerðar um
hljóðvist í skólum m.t.t. nýrra kennsluhátta
og/eða gefa út leiðbeiningar til sveitarstjórna
og hönnuða um æskileg markmið hljóðhönnunar
skólahúsnæðis - Á grundvelli kortlagningar vandans (hljóðmælinga)
verði unnin aðgerðaáætlun um úrbætur og
forgangsröðun verkefna. Rök fyrir því að byrja
þar sem ástandið er verst - Úrbætur verði byggðar á vandaðri hljóðhönnun (Það
þarf að reikna til þess að tryggja árangur) - Eftirfylgni (Hver gætir hagsmuna barna og
kennara?)
9Ég þakka gott hljóð