Setningafr - PowerPoint PPT Presentation

1 / 12
About This Presentation
Title:

Setningafr

Description:

Setningafr ihugt k Teki er mi af Handb k um m lfr i eftir H skuld r insson (1995). N msgagnastofnun, Reykjav k. Kafli 4: Setningafr i, bls 259- – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:66
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 13
Provided by: Stei67
Category:
Tags: setningafr | sting

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Setningafr


1
Setningafræðihugtök
  • Tekið er mið af Handbók um málfræði eftir Höskuld
    Þráinsson (1995). Námsgagnastofnun, Reykjavík.
  • Kafli 4 Setningafræði, bls 259- 282.

2
Setningafræðihugtök I
  • Setning/setningarliður (-hluti)
  • Aðalsetning
  • Fallstjórnandi
  • Aðalorð (kjarni)
  • Ákvæðisorð (ákvæðisliður)
  • Fylliliður
  • Sambeyging
  • Orðflokkar (no/fn/lo/so/ao/fs/st)
  • Áhrifssagnir og andlög
  • Áhrifslausar og ósjálfstæðar sagnir og
    sagnfyllingar
  • Viðurlög, einkunnir og eignar-fallseinkunnir
  • Frumlag, frumlagsígildi, auka-fallsfrumlag

3
Setningafræðihugtök 2
  • Aukasetning
  • Atvikssetning
  • Tilvísunarsetning
  • Fallsetning
  • Samtenging, skýringartenging
  • Spurnaratviksorð
  • Spurnarfornafn
  • Nafnháttarsetning
  • Sjálfgefin orðaröð
  • Breytt orðaröð

4
Setningafræðihugtökskilgreiningar 1
  • Setning
  • Orðasamband sem inniheldur hið minnsta eina
    aðalsögn og oftast líka frumlag. Að auki geta
    komið til fjölmargir aðrir liðir.
  • Dæmi Kallinn lést á sjúkrahúsi í gær.
  • Frl so
  • Setningarliður
  • Eftir gerð skiptast setningarliðir í
  • Nl (aðalorð no eða fn)
  • Sl (aðalorð so)
  • Ll (aðalorð lo)
  • Al (aðalorð ao)
  • Fl (aðalorð fs)

5
Setningafræðihugtökskilgreiningar 2
  • Ákvæðisorð
  • Ákvæðisorð eru þau orð kölluð sem standa með
    öðrum orðumog kveða nánar á um þau (einkenni
    þeirra) eða segja nánar til um hvað við er átt.
    Þau sambeygjast yfirleitt aðalorðinu sem þau
    standa með ef þau eru fallorð.
  • Sigrún keypti gulan bíl
  • Hún á þennan hvolp
  • Hver setti þetta ofsalega ljóta hárband í
    töskuna mína?
  • Fasttengd ákvæðisorð kallast
  • einkunnir en laustengd kallast
  • viðurlög.

6
Setningafræðihugtökskilgreiningar 3
  • Fylliliðir
  • Fylliliður Hugtak sem nær yfir liði sem fylgja
    aðalorði setningarliðs. Ef fylliliður er fallorð
    (Nl) stjórnar aðalorðið falli hans. Andlög sagna
    teljast fylliliðir þeirra og það gera líka aðrir
    liðir sem so. krefjast að fylgi þeim, t.d. Fl og
    Al. Fs. taka með sér fylliliði og stjórna falli á
    þeim og það geta lo. einnig gert og jafnvel no.
  • Hún spurði margs NL er f. með sögn
  • Hún spurði um margt Fl með so.
  • Hann er líkur Jóni Nl með lo.
  • Hann er hræddur við hunda Fl með lo.

7
Setningafræðihugtökskilgreiningar 4
  • Nafnliðir (Nl)
  • Nl hafa no. eða fn. sem aðalorð og geta t.d.
    gegnt hlutverki frumlags eða andlags eða staðið
    með for-setningu. Ákvæðisorð aðalorðsins telst
    hluti af Nl og fylliliður sömu-leiðis.
  • Ég keypti skemmtilega bók áðan
  • Þetta borð er ónýtt
  • Hann er í skítugum skóm
  • Páll er bróðir Heimis

8
Setningafræðihugtökskilgreiningar 5
  • Lýsingarliðir (Ll)
  • Höfuð Lýsingarorð, getur tekið ákvæðisorð og
    fylliorð (ao. og no.)
  • Dæmi
  • Hún er skemmtileg lo.
  • Þú ert mjög fallegur ao.lo.
  • Mér finnst hann líkur Jóni lo.no

9
Setningafræðihugtökskilgreiningar 6
  • Höfuð Sagnorð og það sem því fylgir fylliliðir
    þess.
  • Dæmi
  • Stelpan faðmaði barnið
  • Hann gaf mér bókina
  • Hann heitir Gummi
  • Við lærum mikið heima

10
Setningafræðihugtökskilgreiningar 7
  • Höfuð Forsetning ásamt þeim orðum sem hún stýrir
    falli á. Nafnorð fylgir nær ævinlega forsetningu
    og fall þess stýrist af henni um hest / frá
    hesti / til hests
  • Dæmi
  • Komdu á morgun
  • Förum til Frakklands
  • Ég sæki þig á bílnum

11
Setningafræðihugtökskilgreiningar 8
  • Höfuð Oft eitt atviksorð. Atviksorðinu getur
    fylgt annað atviksorð til nánari fyllingar
  • Dæmi
  • Hún syngur afar vel
  • Atviksorð einkenna mest sagnir syngur vel,
    kemur oft, fer út, er úti.
  • Áhersluatviksorð herða eða draga úr merkingu
    lýsingar-orða afar fallegur, geysilega
    virðulegur.

12
Greindu aðalsetningar og aukasetn-ingar í
eftirfarandi málsgreinum og afmarkaðu nákvæmlega
setningarliði
  • Í nótt struku allir hestarnir úr girðingunni.
  • S¹ Sjálfgefin orðaröð Allir hestarnir struku
  • úr girðingunni í nótt.
  • Hann sagði að veðrið væri mjög gott.
  • S¹ Fallsetning (andlag)
  • Hann kom ekki í skólann af því að hann var
  • S¹ S²Al veikur.
  • Konan sem gisti hjá okkur í nótt er farin
    aftur S²Nl (tilvísunarsetning)
    heim.
  • Héldu þeir síðan leiðar sinnar án frekari tafar.
  • S¹ Sjálfgefin orðaröð Þeir héldu síðan leiðar
    sinnar án frekari tafar.
  • Ég kem þegar ég má vera að.
  • S¹ S²Al (tíðarsetning)
  • Hann gleymdi öllu eins og ég bjóst við.
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com